Annað Jóhannesarbréf 1 - Biblían (2007)

Kveðja

1Öldungurinn heilsar hinni útvöldu frú og börnum hennar sem ég elska sannarlega. Og ekki ég einn heldur einnig allir sem þekkja sannleikann.

2Við gerum það sakir sannleikans sem í okkur er og mun vera hjá okkur til eilífðar.

3Náð, miskunn og friður frá Guði föður og frá Jesú Kristi, syni föðurins, mun vera með okkur í sannleika og kærleika.

Elska og sannleikur

4Það hefur glatt mig mjög að ég hef fundið nokkur barna þinna sem lifa í sannleikanum eins og faðirinn bauð okkur.

5Og nú bið ég þig, frú mín góð, og er þá ekki að skrifa þér nýtt boðorð, heldur það er við höfðum frá upphafi: Við skulum elska hvert annað.

6Kærleikurinn felst í að við lifum eftir boðorðum hans. Þetta er boðorðið, eins og þið heyrðuð það frá upphafi til þess að þið skylduð breyta samkvæmt því.

7Því að margir afvegaleiðendur eru farnir út í heiminn sem ekki játa að Jesús sé Kristur, kominn sem maður. Þetta er afvegaleiðandinn og andkristurinn.

8Hafið gætur á sjálfum ykkur að þið missið ekki það sem við höfum áunnið heldur megið fá full laun.

9Sérhver sem fer sínu fram og er ekki staðfastur í kenningu Krists á ekki Guð. Hinn sem er staðfastur í kenningunni á bæði föðurinn og soninn.

10Ef einhver kemur til ykkar og boðar aðra kenningu, þá takið hann ekki á heimili ykkar og bjóðið hann ekki velkominn.

11Því að sá sem býður hann velkominn tekur þátt í hans vondu verkum.

12Þótt ég hafi margt að rita ykkur vildi ég ekki gera það með pappír og bleki heldur vona að koma til ykkar og sjá ykkur og tala við ykkur til þess að gleði okkar verði fullkomin.

13Börn systur þinnar, hinnar útvöldu, biðja að heilsa þér.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help