Orðskviðirnir 6 - Biblían (2007)

Hagnýt ráð

1Sonur minn, hafir þú gengið í ábyrgð fyrir náunga þinn,

hafir þú átt handsal við framandi mann,

2þá hefurðu bundið þig eigin orðum,

látið fangast af orðum munns þíns.

3Gerðu þá þetta, sonur minn, til að losa þig

því að þú ert kominn á vald náunga þíns:

Farðu í flýti og leggðu að náunga þínum.

4Láttu þér hvorki koma dúr á auga né blundur á brá.

5Losaðu þig eins og dádýr úr höndum hans,

eins og fugl úr höndum fuglarans.

6Farðu til maursins, letingi.

Skoðaðu háttu hans og lærðu hyggindi.

7Þótt hann hafi engan höfðingja,

engan yfirboðara eða valdsherra,

8þá aflar hann sér samt vista á sumrin

og dregur saman fæðuna um uppskerutímann.

9Hve lengi ætlar þú að hvílast, letingi?

Hvenær ætlar þú að rísa af svefni?

10Sofa ögn enn, blunda ögn enn,

leggja saman hendur til að hvílast ögn enn.

11Þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi,

skorturinn eins og vopnaður maður.

12Varmennið, illmennið, talar tveimur tungum,

13deplar augunum, gefur merki með fótunum

og bendir fingrunum,

14bruggar vélráð í hjarta sínu,

áformar ódæði, kveikir illdeilur.

15Því mun ógæfan steypast yfir hann,

á augabragði kemur hrun hans

og ekkert er til bjargar.

16Sex hluti hatar Drottinn

og sjö eru sálu hans andstyggð:

17hrokafullt augnaráð, lygin tunga

og hendur sem úthella saklausu blóði,

18hjarta sem bruggar fjörráð,

fætur sem fráir eru til illverka,

19ljúgvottur sem sver meinsæri

og sá sem kveikir illdeilur meðal bræðra.

20Varðveittu, sonur minn, fyrirmæli föður þíns

og hafnaðu ekki viðvörun móður þinnar.

21Festu þau á hjarta þitt,

bittu þau um háls þinn.

22Þau leiða þig hvar sem þú ferð,

þegar þú hvílist vaka þau yfir þér

og þegar þú vaknar, þá tala þau til þín.

23Því að fyrirmæli eru lampi og viðvörun ljós,

og hvatning og handleiðsla leið til lífsins

24því að þær varðveita þig fyrir vondri konu,

fyrir hálli tungu framandi konu.

25Girnstu ekki fegurð hennar í hjarta þínu

og láttu hana ekki ginna þig með augnaráði sínu.

26Því að skækja fæst fyrir einn brauðhleif

en ótrú kona náunga þíns sækist eftir lífi þínu.

27Getur nokkur borið glóð í klæðafaldi

án þess að föt hans sviðni?

28Getur nokkur gengið á glóðum

án þess að svíða iljar sínar?

29Svo fer þeim sem hefur mök við konu náunga síns,

sá hlýtur refsingu sem hana snertir.

30Enginn fyrirlítur þjófinn

þegar hann stelur til að seðja hungur sitt.

31Náist hann verður hann þó að greiða sjöfalt

og láta frá sér allar eigur sínar.

32Sá sem drýgir hór með giftri konu

er vitstola, hann steypir sjálfum sér í glötun.

33Högg og smán mun hann hljóta

og vansæmd hans verður aldrei afmáð.

34Eiginmaðurinn verður hamstola af reiði

og hefnd hans verður vægðarlaus,

35hann lítur ekki við neinum bótum

og hafnar gjöfum þínum hversu ríkulegar sem þær eru.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help