Sálmarnir 148 - Biblían (2007)

1Hallelúja.

Lofið Drottin af himnum,

lofið hann á hæðum,

2lofið hann, allir englar hans,

lofið hann, allir herskarar hans.

3Lofið hann, sól og tungl,

lofið hann, allar lýsandi stjörnur,

4lofið hann, himnanna himnar,

og vötnin himni ofar.

5Lofi þau nafn Drottins

því að þau voru sköpuð að boði hans.

6Hann fékk þeim stað um aldur og ævi,

setti þeim lög sem þau fá ekki brotið.

7Lofið Drottin frá jörðu,

þér stóru sjávardýr og öll djúp hafsins,

8eldur og hagl, snjór og þoka,

þú stormur, sem framfylgir boði hans,

9þér fjöll og allar hæðir,

ávaxtatrén og öll sedrustré,

10þér villidýr og allt búfé,

skriðdýr og fljúgandi fuglar,

11þér konungar jarðar og allar þjóðir,

höfðingjar og allir valdsmenn jarðar,

12yngismenn og yngismeyjar,

aldnir og ungir.

13Þau lofi nafn Drottins

því að nafn hans eitt er hátt upp hafið,

hátign hans ljómar um himin og jörð.

14Hann hefur gert þjóð sína volduga,

því hljómi lofsöngur hjá öllum dýrkendum hans,

hjá sonum Ísraels, lýðnum sem er honum nálægur.

Hallelúja.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help