Galatabréfið 4 - Biblían (2007)

Ekki þrælar heldur börn

1Með öðrum orðum: Alla þá stund sem erfinginn er ófullveðja er enginn munur á honum og þræli þótt hann eigi allt.

2Hann er undir fjárhaldsmönnum og ráðsmönnum til þess tíma er faðirinn hefur ákveðið.

3Þannig vorum við einnig, er við vorum ófullveðja, í ánauð heimsvættanna.

4En þegar fylling tímans kom sendi Guð son sinn, fæddan af konu, fæddan undir lögmáli −

5til þess að hann keypti lausa þá sem voru undir lögmáli og við yrðum börn Guðs.

6En þar eð þið eruð börn, þá hefur Guð sent anda sonar síns í hjörtu okkar sem hrópar: „Abba, faðir!“

7Þú ert þá ekki framar þræll heldur barn. En ef þú ert barn, þá hefur Guð líka gert þig erfingja.

8Forðum, er þið þekktuð ekki Guð, voruð þið þrælar guða sem eru ekki neinir guðir.

9En nú, eftir að þið þekkið Guð, eða réttara sagt, eftir að Guð þekkir ykkur, hvernig getið þið snúið aftur til hinna veiku og fátæklegu vætta? Viljið þið þræla undir þeim að nýju?

10Þið haldið upp á ákveðna daga og mánuði, tíðir og ár.

11Ég er hræddur um að ég kunni að hafa erfiðað hjá ykkur til ónýtis.

12Ég bið ykkur, bræður mínir og systur: Verðið eins og ég því að ég er orðinn eins og þið. Í engu hafið þið gert á hluta minn.

13Þið vitið að sjúkleiki minn varð tilefni til þess að ég fyrst boðaði ykkur fagnaðarerindið.

14En þið létuð ekki líkamsásigkomulag mitt verða ykkur til ásteytingar og óvirtuð mig ekki né sýnduð mér óbeit, heldur tókuð þið á móti mér eins og engli Guðs, eins og Kristi Jesú sjálfum.

15Hvað er nú orðið úr blessunarbænum ykkar? Það vitni ber ég ykkur að augun hefðuð þið stungið úr ykkur og gefið mér ef auðið hefði verið.

16Er ég þá orðinn óvinur ykkar vegna þess að ég segi ykkur sannleikann?

17Þeir láta sér annt um ykkur en það er eigi af góðu heldur vilja þeir einangra ykkur til þess að þið látið ykkur annt um þá.

18Það er ávallt gott að láta sér annt um það sem gott er og ekki aðeins meðan ég er hjá ykkur,

19börn mín, sem ég að nýju el með harmkvælum þangað til Kristur er myndaður í ykkur!

20Ég vildi ég væri nú hjá ykkur og gæti talað nýjum rómi því að ég er ráðalaus með ykkur.

Tveir sáttmálar

21Segið mér, þið sem viljið vera undir lögmáli, heyrið þið ekki hvað lögmálið segir?

22Ritað er að Abraham átti tvo sonu, annan við ambáttinni en hinn við frjálsu konunni.

23Sonurinn við ambáttinni var fæddur á náttúrulegan hátt en sonurinn við frjálsu konunni var fæddur samkvæmt fyrirheiti.

24Þetta hefur óeiginlega merkingu: Konurnar merkja tvo sáttmála: Annar er sá frá Sínaífjalli og elur börn til ánauðar, það er Hagar;

25en Hagar merkir Sínaífjall í Arabíu og samsvarar hinni núverandi Jerúsalem því að hún er í ánauð ásamt börnum sínum.

26En Jerúsalem, sem er í hæðum, er frjáls og hún er móðir vor

27því að ritað er:

Ver glöð, óbyrja, sem ekkert barn hefur átt!

Hrópa og kalla hátt, þú sem ekki hefur jóðsjúk orðið.

Því að börn hinnar yfirgefnu eru fleiri

en hinnar sem manninn á.

28En þið, bræður mínir og systur, eruð börn Guðs eins og Ísak af því að hann gaf fyrirheit um ykkur.

29En eins og sá sem fæddur var á náttúrulegan hátt ofsótti forðum þann sem fæddur var á undursamlegan hátt, svo er það og nú.

30En hvað segir ritningin? „Rektu burt ambátt þessa og son hennar því að ekki skal ambáttarsonurinn taka arf með syni frjálsu konunnar.“

31Þess vegna, bræður mínir og systur, erum við ekki ambáttar börn heldur börn frjálsu konunnar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help