Sálmarnir 109 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Davíðssálmur.

Þú, Guð lofsöngs míns, ver eigi hljóður

2því að óguðlegan og svikulan munn

opna þeir gegn mér,

tala við mig með ljúgandi tungu.

3Með hatursorðum umkringja þeir mig

og áreita mig að ástæðulausu.

4Þeir launa elsku mína með fjandskap

en ég endurgeld þeim með bæn.

5Þeir launa mér gott með illu

og elsku mína með hatri.

6Sendið óguðlegan gegn mótstöðumanni mínum

og ákærandinn standi honum til hægri handar.

7Hann gangi sakfelldur frá dómi

og bæn hans verði honum til áfellis.

8Dagar hans verði fáir

og annar hljóti embætti hans.

9Börn hans verði föðurlaus

og kona hans ekkja,

10börn hans fari á flæking og vergang,

rekin úr rústum heimilis síns.

11Okrarinn leggi snöru fyrir allar eigur hans

og ókunnugir ræni afla hans.

12Enginn sýni honum líkn

og enginn aumkist yfir föðurlaus börn hans.

13Niðjar hans verði afmáðir,

nöfn þeirra þurrkuð út í næstu kynslóð.

14Drottinn minnist misgjörðar feðra hans

og synd móður hans verði ekki afmáð,

15séu þær ætíð fyrir augum Drottins,

hann afmái minningu hans af jörðinni

16sakir þess að hann gleymdi að sýna gæsku

en ofsótti hinn hrjáða og snauða

og hinn ráðþrota til þess að drepa hann.

17Hann hafði ánægju af bölbænum,

þær bitni á honum sjálfum,

blessun gladdi hann ekki,

hún sé honum fjarri.

18Hann íklæddist bölvuninni sem kufli,

hún þrengi sér í innyfli hans sem vatn

og í bein hans sem olía,

19hún verði honum skikkja sem hylur hann,

belti er hann sífellt gyrðist.

20Þetta séu laun hatursmanna minna frá Drottni,

þeirra sem sífellt rægja mig.

21En þú, Drottinn, Guð minn, breyt vel við mig sakir nafns þíns,

frelsa mig sakir gæsku þinnar og miskunnar

22því að ég er hrjáður og snauður,

hjartað berst í brjósti mér.

23Ég hverf sem skugginn er degi hallar,

ég er flæmdur burt eins og engispretta,

24hné mín skjögra af föstu

og hold mitt skortir feiti.

25Ég er orðinn mönnum að spotti,

þeir hrista höfuðið þegar þeir sjá mig.

26Hjálpa mér, Drottinn, Guð minn,

bjarga mér eftir miskunn þinni,

27að þeir megi komast að raun um að það var þín hönd,

að það varst þú, Drottinn, sem gerðir það.

28Bölvi þeir, blessar þú,

rísi þeir gegn mér verði þeir til skammar

en þjónn þinn gleðjist.

29Andstæðingar mínir íklæðist svívirðing,

sveipi sig skömminni eins og skikkju.

30Ég vil lofa Drottin með munni mínum,

í fjölmenni vegsama ég hann

31því að hann stendur við hlið hins snauða

til að hjálpa honum gegn þeim sem sakfella hann.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help