Malakí 4 - Icelandic Bible 1981

1Því sjá, dagurinn kemur, brennandi sem ofn, og allir hrokafullir og allir þeir er guðleysi fremja, munu þá vera sem hálmleggir, og dagurinn sem kemur mun kveikja í þeim - segir Drottinn allsherjar - svo að hvorki verði eftir af þeim rót né kvistur.

2En yfir yður, sem óttist nafn mitt, mun réttlætissólin upp renna með græðslu undir vængjum sínum, og þér munuð út koma og leika yður eins og kálfar, sem út er hleypt úr stíu,

3og þér munuð sundur troða hina óguðlegu, því að þeir munu verða aska undir iljum yðar, - á þeim degi er ég hefst handa - segir Drottinn allsherjar.

Elía kemur aftur

4Munið eftir lögmáli Móse þjóns míns, þess er ég á Hóreb fól setninga og ákvæði fyrir allan Ísrael.

5Sjá, ég sendi yður Elía spámann, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur.

6Hann mun sætta feður við sonu og sonu við feður, til þess að ég komi ekki og ljósti landið banni.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help