Orðskviðirnir 23 - Icelandic Bible 1981

1Þegar þú situr til borðs með valdsherra,

þá gæt þess vel, hvern þú hefir fyrir framan þig,

2og set þér hníf á barka,

ef þú ert matmaður.

3Lát þig ekki langa í kræsingar hans,

því að þær eru svikul fæða.

4Streist þú ekki við að verða ríkur,

hættu að verja viti þínu til þess.

5Hvort skulu augu þín hvarfla til auðsins, sem er svo stopull?

Því að sannlega gjörir hann sér vængi

eins og örn, sem flýgur til himins.

6Et eigi brauð hjá nískum manni

og lát þig ekki langa í kræsingar hans,

7því að hann er eins og maður, sem reiknar með sjálfum sér.

“Et og drekk!” segir hann við þig,

en hjarta hans er eigi með þér.

8Bitanum, sem þú hefir etið, verður þú að æla upp aftur,

og blíðmælum þínum hefir þú á glæ kastað.

9Tala þú eigi fyrir eyrum heimskingjans,

því að hann fyrirlítur hyggindi ræðu þinnar.

10Fær þú eigi úr stað landamerki ekkjunnar

og gakk þú eigi inn á akra munaðarleysingjanna,

11því að lausnari þeirra er sterkur -

hann mun flytja mál þeirra gegn þér.

12Snú þú hjarta þínu að umvöndun

og eyrum þínum að vísdómsorðum.

13Spara eigi aga við sveininn,

því ekki deyr hann, þótt þú sláir hann með vendinum.

14Þú slær hann að sönnu með vendinum,

en þú frelsar líf hans frá Helju.

Áminning föður

15Son minn, þegar hjarta þitt verður viturt,

þá gleðst ég líka í hjarta mínu,

16og nýru mín fagna,

er varir þínar mæla það sem rétt er.

17Lát eigi hjarta þitt öfunda syndara,

heldur ástunda guðsótta á degi hverjum,

18því að vissulega er enn framtíð fyrir hendi,

og von þín mun eigi að engu verða.

19Heyr þú, son minn, og ver vitur

og stýr hjarta þínu rétta leið.

20Ver þú ekki með drykkjurútum,

með þeim, sem hvoma í sig kjöt,

21því að drykkjurútar og mathákar verða snauðir,

og svefnmók klæðir í tötra.

22Hlýð þú föður þínum, sem hefir getið þig,

og fyrirlít ekki móður þína, þótt hún sé orðin gömul.

23Kaup þú sannleika, og sel hann ekki,

visku, aga og hyggindi.

24Faðir réttláts manns fagnar,

og sá sem gat vitran son, gleðst af honum.

25Gleðjist faðir þinn og móðir þín

og fagni hún, sem fæddi þig.

26Son minn, gef mér hjarta þitt,

og lát vegu mína vera þér geðfellda.

27Því að skækja er djúp gröf

og léttúðardrós þröngur pyttur.

28Já, hún liggur í leyni eins og ræningi

og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.

Vínsvelgurinn

29Hver æjar? hver veinar?

hver á í deilum? hver kvartar?

hver fær sár að þarflausu? hver rauð augu?

30Þeir sem sitja við vín fram á nætur,

þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.

31Horf þú ekki á vínið, hve rautt það er,

hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.

32Að síðustu bítur það sem höggormur

og spýtir eitri sem naðra.

33Augu þín munu sjá kynlega hluti,

og hjarta þitt mun mæla fláræði.

34Og þú munt vera eins og sá, sem liggur úti í miðju hafi,

já, eins og sá, er liggur efst uppi á siglutré.

35“Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til,

þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var.

Hvenær mun ég vakna?

Ég vil meira vín!”

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help