Sálmarnir 92 - Icelandic Bible 1981

1Sálmur. Hvíldardagsljóð.

2Gott er að lofa Drottin

og lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti,

3að kunngjöra miskunn þína að morgni

og trúfesti þína um nætur

4á tístrengjað hljóðfæri og hörpu

með strengjaleik gígjunnar.

5Þú hefir glatt mig, Drottinn, með dáð þinni,

yfir handaverkum þínum fagna ég.

6Hversu mikil eru verk þín, Drottinn,

harla djúpar hugsanir þínar.

7Fíflið eitt skilur eigi,

og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta.

8Þegar óguðlegir greru sem gras

og allir illgjörðamennirnir blómguðust,

þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu,

9en þú sem ert á hæðum, ert til að eilífu, Drottinn.

10Því sjá, óvinir þínir, Drottinn,

því sjá, óvinir þínir farast,

allir illgjörðamennirnir tvístrast.

11En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn,

mig hressir þú með ferskri olíu.

12Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína,

eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér.

13Hinir réttlátu gróa sem pálminn,

vaxa sem sedrustréð á Líbanon.

14Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins,

gróa í forgörðum Guðs vors.

15Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt,

þeir eru safamiklir og grænir.

16Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur,

klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help