Jobsbók 25 - Icelandic Bible 1981

Þriðja ræða Bildads

1Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:

2Hans er drottinvald og ótti,

hans sem lætur frið ríkja í hæðum sínum.

3Verður tölu komið á hersveitir hans,

og yfir hverjum rennur ekki upp ljós hans?

4Hvernig ætti maðurinn þá að vera réttlátur hjá Guði,

og hvernig ætti sá að vera hreinn, sem af konu er fæddur?

5Sjá, jafnvel tunglið, það er ekki bjart,

og stjörnurnar eru ekki hreinar í augum hans,

6hvað þá maðurinn, maðkurinn,

og mannssonurinn, ormurinn!

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help