Jobsbók 35 - Icelandic Bible 1981

Mikilleiki Guðs

1Og Elíhú tók enn til máls og sagði:

2Hyggur þú það vera rétt,

kallar þú það “réttlæti mitt fyrir Guði,”

3að þú spyr, hvað það stoði þig?

“Hvaða gagn hefi ég af því, fremur en ef ég syndgaði?”

4Ég ætla að veita þér andsvör í móti

og vinum þínum með þér.

5Horf þú á himininn og sjá,

virtu fyrir þér skýin, sem eru hátt yfir þér.

6Syndgir þú, hvað getur þú gjört honum?

Og séu afbrot þín mörg, hvaða skaða gjörir þú honum?

7Sért þú ráðvandur, hvað gefur þú honum,

eða hvað þiggur hann af þinni hendi?

8Mann, eins og þig, varðar misgjörð þín

og mannsins barn ráðvendni þín.

9Menn æpa að sönnu undan hinni margvíslegu kúgan,

kveina undan armlegg hinna voldugu,

10en enginn þeirra segir: “Hvar er Guð, skapari minn,

sá er leiðir fram lofsöngva um nótt,

11sem fræðir oss meira en dýr merkurinnar

og gjörir oss vitrari en fugla loftsins?”

12Þá æpa menn - en hann svarar ekki -

undan drambsemi hinna vondu.

13Nei, hégómamál heyrir Guð eigi,

og hinn Almáttki gefur því engan gaum,

14hvað þá, er þú segir, að þú sjáir hann ekki.

Málið er lagt fram fyrir hann, og þú átt að bíða eftir honum.

15En nú, af því að reiði hans hefir eigi refsað,

á hann alls eigi að hafa vitað neitt um yfirsjónina!

16En Job opnar munninn til að mæla hégóma,

heldur langar ræður í vanhyggju sinni.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help