1Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta eftir konungsslátt.
2En er þær höfðu gjöretið grasið af jörðinni, sagði ég: “Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!”
3Þá iðraði Drottin þessa. “Það skal ekki verða!” sagði Drottinn.
Önnur sýn: Eldur4Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom til þess að hegna með eldi, og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið.
5Þá sagði ég: “Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!”
6Þá iðraði Drottin þessa. “Þetta skal ekki heldur verða!” sagði Drottinn.
Þriðja sýn: Lóðlína7Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði.
8Og Drottinn sagði við mig: “Hvað sér þú, Amos?” Ég svaraði: “Lóð.” Þá sagði Drottinn: “Sjá, ég mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels, ég vil eigi lengur umbera hann.
9Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða, og ég vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði.”
Amos gjörður brottrækur frá Betel10Amasía prestur í Betel sendi boð til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: “Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Landið fær eigi þolað öll orð hans.
11Því að svo hefir Amos sagt: ‘Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.’”
12Síðan sagði Amasía við Amos: “Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar!
13En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að hér er konunglegur helgidómur og ríkismusteri.”
14Þá svaraði Amos og sagði við Amasía: “Ég er enginn spámaður, og ég er ekki af spámannaflokki, heldur er ég hjarðmaður og rækta mórber.
15En Drottinn tók mig frá hjarðmennskunni og sagði við mig: ‘Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.’
16Og heyr því orð Drottins: Þú segir: ‘Þú mátt eigi spá gegn Ísrael né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.’
17Fyrir því segir Drottinn svo: ‘Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.’”
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.