Sálmarnir 28 - Icelandic Bible 1981

1Davíðssálmur.

Til þín, Drottinn, hrópa ég,

þú bjarg mitt, ver eigi hljóður gagnvart mér.

Ef þú þegir við mér,

verð ég sem þeir, er til grafar eru gengnir.

2Heyr þú á grátbeiðni mína,

er ég hrópa til þín,

er ég lyfti höndum mínum

til Hins allrahelgasta í musteri þínu.

3Hríf mig eigi á burt með óguðlegum

og með illgjörðamönnum,

þeim er tala vinsamlega við náunga sinn,

en hafa illt í hyggju.

4Launa þeim eftir verkum þeirra,

eftir þeirra illu breytni,

launa þeim eftir verkum handa þeirra,

endurgjald þeim það er þeir hafa aðhafst.

5Því að þeir hyggja eigi á verk Drottins

né handaverk hans,

hann rífi þá niður og reisi þá eigi við aftur.

6Lofaður sé Drottinn,

því að hann hefir heyrt grátbeiðni mína.

7Drottinn er vígi mitt og skjöldur,

honum treysti hjarta mitt.

Ég hlaut hjálp, því fagnar hjarta mitt,

og með ljóðum mínum lofa ég hann.

8Drottinn er vígi lýð sínum

og hjálparhæli sínum smurða.

9Hjálpa lýð þínum og blessa eign þína,

gæt þeirra og ber þá að eilífu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help