Sálmarnir 47 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Kóraítasálmur.

2Klappið saman lófum, allar þjóðir,

fagnið fyrir Guði með gleðiópi.

3Því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur,

voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni.

4Hann leggur undir oss lýði

og þjóðir fyrir fætur vora.

5Hann útvaldi handa oss óðal vort,

fremdarhnoss Jakobs, sem hann elskar. [Sela]

6Guð er upp stiginn með fagnaðarópi,

með lúðurhljómi er Drottinn upp stiginn.

7Syngið Guði, syngið,

syngið konungi vorum, syngið!

8Því að Guð er konungur yfir gjörvallri jörðinni,

syngið Guði lofsöng!

9Guð er orðinn konungur yfir þjóðunum,

Guð er setstur í sitt heilaga hásæti.

10Göfugmenni þjóðanna safnast saman

ásamt lýð Abrahams Guðs.

Því að Guðs eru skildir jarðarinnar,

hann er mjög hátt upphafinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help