Sálmarnir 5 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Með hljóðpípu. Davíðssálmur.

2Heyr orð mín, Drottinn,

gef gaum að andvörpum mínum.

3Hlýð þú á kveinstafi mína,

konungur minn og Guð minn,

því að til þín bið ég.

4Drottinn, á morgnana heyrir þú rödd mína,

á morgnana legg ég bæn mína fram fyrir þig,

og ég bíð þín.

5Þú ert eigi sá Guð, er óguðlegt athæfi líki,

hinir vondu fá eigi að dveljast hjá þér.

6Hinir hrokafullu fá eigi staðist fyrir þér,

þú hatar alla er illt gjöra.

7Þú tortímir þeim, sem lygar mæla,

á blóðvörgum og svikurum hefir Drottinn andstyggð.

8En ég fæ að ganga í hús þitt

fyrir mikla miskunn þína,

fæ að falla fram fyrir þínu heilaga musteri

í ótta frammi fyrir þér.

9Drottinn, leið mig eftir réttlæti þínu

sakir óvina minna,

gjör sléttan veg þinn fyrir mér.

10Einlægni er ekki til í munni þeirra,

hjarta þeirra er glötunardjúp.

Kok þeirra er opin gröf,

með tungu sinni hræsna þeir.

11Dæm þá seka, Guð,

falli þeir sakir ráðagjörða sinna,

hrind þeim burt sakir hinna mörgu afbrota þeirra,

því að þeir storka þér.

12Allir kætast, er treysta þér,

þeir fagna að eilífu,

því að þú verndar þá.

Þeir sem elska nafn þitt

gleðjast yfir þér.

13Því að þú, Drottinn, blessar hinn réttláta,

hlífir honum með náð þinni eins og með skildi.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help