1Orðskviðir Salómons Davíðssonar, Ísraels konungs,
2til þess að menn kynnist visku og aga,
læri að skilja skynsamleg orð,
3til þess að menn fái viturlegan aga,
réttlæti, réttvísi og ráðvendni,
4til þess að þeir veiti hinum óreyndu hyggindi,
unglingum þekking og aðgætni, -
5hinn vitri hlýðir á og eykur lærdóm sinn,
og hinn hyggni nemur hollar lífsreglur -
6til þess að menn skilji orðskviði og líkingamál,
orð spekinganna og gátur þeirra.
Varastu slæman félagsskap7Ótti Drottins er upphaf þekkingar,
visku og aga fyrirlíta afglapar einir.
8Hlýð þú, son minn, á áminning föður þíns
og hafna eigi viðvörun móður þinnar,
9því að þær eru yndislegur sveigur á höfði þér
og men um háls þinn.
10Son minn, þegar skálkar ginna þig,
þá gegn þeim eigi.
11Þegar þeir segja: “Kom með oss!
Leggjumst í launsátur til manndrápa,
sitjum án saka um saklausan mann,
12gleypum þá lifandi eins og Hel -
með húð og hári, eins og þá sem farnir eru til dánarheima.
13Alls konar dýra muni munum vér eignast,
fylla hús vor rændum fjármunum.
14Þú skalt taka jafnan hlut með oss,
einn sjóð skulum vér allir hafa” -
15son minn, þá haf ekki samleið við þá,
halt fæti þínum frá stigum þeirra.
16Því að fætur þeirra eru skjótir til ills
og fljótir til að úthella blóði.
17Því að til einskis þenja menn út netið
í augsýn allra fleygra fugla,
18og slíkir menn sitja um sitt eigið líf,
liggja í launsátri fyrir sjálfum sér.
19Þannig fer öllum þeim, sem fíknir eru í rangfenginn gróða:
fíknin verður þeim að fjörlesti.
Spekin prédikar sinnaskipti20Spekin kallar hátt á strætunum,
lætur rödd sína gjalla á torgunum.
21Hún hrópar á glaummiklum gatnamótum,
við borgarhliðin heldur hún tölur sínar:
22Hversu lengi ætlið þér, fávísir, að elska fávísi
og hinir háðgjörnu að hafa yndi af háði
og heimskingjarnir að hata þekkingu?
23Snúist til umvöndunar minnar,
sjá, ég læt anda minn streyma yfir yður,
kunngjöri yður orð mín.
24En af því að þér færðust undan, þá er ég kallaði,
og enginn gaf því gaum, þótt ég rétti út höndina,
25heldur létuð öll mín ráð sem vind um eyrun þjóta
og skeyttuð eigi umvöndun minni,
26þá mun ég hlæja í ógæfu yðar,
draga dár að, þegar skelfingin dynur yfir yður,
27þegar skelfingin dynur yfir yður eins og þrumuveður
og ógæfa yðar nálgast eins og fellibylur,
þegar neyð og angist dynja yfir yður.
28Þá munu þeir kalla á mig, en ég mun ekki svara,
þeir munu leita mín, en ekki finna mig.
29Vegna þess að þeir hötuðu þekking
og aðhylltust ekki ótta Drottins,
30skeyttu ekki ráðum mínum
og smáðu alla umvöndun mína,
31þá skulu þeir fá að neyta ávaxtar breytni sinnar
og mettast af sínum eigin vélræðum.
32Því að fráhvarf fávísra drepur þá,
og uggleysi heimskingjanna tortímir þeim.
33En sá sem á mig hlýðir, mun búa óhultur,
mun vera öruggur og engri óhamingju kvíða.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.