Sálmarnir 73 - Icelandic Bible 1981

Þriðja bók

1Asafs-sálmur.

Vissulega er Guð góður við Ísrael,

við þá sem hjartahreinir eru.

2Nærri lá, að fætur mínir hrösuðu,

lítið vantaði á, að ég skriðnaði í skrefi,

3því að ég fylltist gremju út af hinum hrokafullu,

þegar ég sá gengi hinna guðlausu.

4Þeir hafa engar hörmungar að bera,

líkami þeirra er heill og hraustur.

5Þeim mætir engin mæða sem öðrum mönnum,

og þeir verða eigi fyrir neinum áföllum eins og aðrir menn.

6Fyrir því er hrokinn hálsfesti þeirra,

þeir eru sveipaðir ofríki eins og yfirhöfn.

7Frá mörhjarta kemur misgjörð þeirra,

girndir þeirra ganga fram úr öllu hófi.

8Þeir spotta og tala af illsku,

mæla kúgunarorð í mikilmennsku sinni.

9Með munni sínum snerta þeir himininn,

en tunga þeirra er tíðförul um jörðina.

10Fyrir því aðhyllist lýðurinn þá

og teygar gnóttir vatns.

11Þeir segja: “Hvernig ætti Guð að vita

og Hinn hæsti að hafa nokkra þekkingu?”

12Sjá, þessir menn eru guðlausir,

og þó lifa þeir ætíð áhyggjulausir og auka efni sín.

13Vissulega hefi ég til ónýtis haldið hjarta mínu hreinu

og þvegið hendur mínar í sakleysi,

14ég þjáist allan daginn,

og á hverjum morgni bíður mín hirting.

15Ef ég hefði haft í hyggju að tala þannig,

sjá, þá hefði ég brugðið trúnaði við kyn barna þinna.

16En ég hugsaði um, hvernig ég ætti að skilja það,

það var erfitt í augum mínum,

17uns ég kom inn í helgidóma Guðs

og skildi afdrif þeirra:

18Vissulega setur þú þá á sleipa jörð,

þú lætur þá falla í rústir.

19Sviplega verða þeir að auðn,

líða undir lok, tortímdir af skelfingum.

20Eins og draum er maður vaknar,

þannig fyrirlítur þú, Drottinn, mynd þeirra, er þú ríst á fætur.

21Þegar beiskja var í hjarta mínu

og kvölin nísti hug minn,

22þá var ég fáráðlingur og vissi ekkert,

var sem skynlaus skepna gagnvart þér.

23En ég er ætíð hjá þér,

þú heldur í hægri hönd mína.

24Þú munt leiða mig eftir ályktun þinni,

og síðan munt þú taka við mér í dýrð.

25Hvern á ég annars að á himnum?

Og hafi ég þig, hirði ég eigi um neitt á jörðu.

26Þótt hold mitt og hjarta tærist,

er Guð bjarg hjarta míns og hlutskipti mitt um eilífð.

27Því sjá, þeir sem fjarlægjast þig, farast,

þú afmáir alla þá, sem eru þér ótrúir.

28En mín gæði eru það að vera nálægt Guði,

ég hefi gjört Drottin að athvarfi mínu

og segi frá öllum verkum þínum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help