Ljóðaljóðin 8 - Icelandic Bible 1981

1Ó, að þú værir mér sem bróðir, er sogið hefði brjóst móður minnar.

Hitti ég þig úti, mundi ég kyssa þig,

og menn mundu þó ekki fyrirlíta mig.

2Ég mundi leiða þig, fara með þig í hús móður minnar,

í herbergi hennar er mig ól.

Ég mundi gefa þér kryddvín að drekka,

kjarneplalög minn.

3Vinstri hönd hans sé undir höfði mér,

en hin hægri umfaðmi mig.

(Brúðguminn)

4Ég særi yður, Jerúsalemdætur:

Ó, vekið ekki, vekið ekki elskuna,

fyrr en hún sjálf vill.

(Kór)

5Hver er sú, sem kemur þarna úr heiðinni

og styðst við unnusta sinn?

(Brúðurin)

Undir eplatrénu vakti ég þig,

þar fæddi móðir þín þig með kvöl,

þar fæddi með kvöl sú er þig ól.

6Legg mig sem innsiglishring við hjarta þér,

sem innsiglishring við armlegg þinn.

Því að elskan er sterk eins og dauðinn,

ástríðan hörð eins og Hel.

Blossar hennar eru eldblossar,

logi hennar brennandi.

7Mikið vatn getur ekki slökkt elskuna

og árstraumar ekki drekkt henni.

Þótt einhver vildi gefa öll auðæfi húss síns fyrir elskuna,

þá mundu menn ekki gjöra annað en fyrirlíta hann.

(Kór)

8Við eigum unga systur,

sem enn er brjóstalaus.

Hvað eigum við að gjöra við systur okkar,

þá er einhver kemur að biðja hennar?

9Ef hún er múrveggur,

þá reisum við á honum silfurtind,

en ef hún er hurð,

þá lokum við henni með sedrusbjálka.

(Brúðurin)

10Ég er múrveggur,

og brjóst mín eru eins og turnar.

Ég varð í augum hans

eins og sú er fann hamingjuna.

(Brúðguminn)

11Salómon átti víngarð í Baal Hamón.

Hann fékk víngarðinn varðmönnum,

hver átti að greiða þúsund sikla silfurs fyrir sinn hlut ávaxtanna.

12Víngarðurinn minn, sem ég á, er fyrir mig.

Eig þú þúsundin, Salómon,

og þeir sem gæta ávaxtar hans, tvö hundruð.

13Þú sem býr í görðunum,

vinir hlusta á rödd þína,

lát mig heyra hana.

(Brúðurin)

14Flý þú burt, unnusti minn,

og líkst þú skógargeitinni

eða hindarkálfi á balsamfjöllum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help