Sálmarnir 140 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Davíðssálmur.

2Frelsa mig, Drottinn, frá illmennum,

vernda mig fyrir ofríkismönnum,

3þeim er hyggja á illt í hjarta sínu

og vekja ófrið á degi hverjum.

4Þeir gjöra tungur sínar hvassar sem höggormar,

nöðrueitur er undir vörum þeirra. [Sela]

5Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra,

vernda mig fyrir ofríkismönnum,

er hyggja á að bregða fæti fyrir mig.

6Ofstopamenn hafa lagt gildrur í leyni fyrir mig

og þanið út snörur eins og net,

hjá vegarbrúninni hafa þeir lagt möskva fyrir mig. [Sela]

7Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn,

ljá eyra, Drottinn, grátbeiðni minni.

8Drottinn Guð, mín máttuga hjálp,

þú hlífir höfði mínu á orustudeginum.

9Uppfyll eigi, Drottinn, óskir hins óguðlega,

lát vélar hans eigi heppnast. [Sela]

10Þeir skulu eigi hefja höfuðið umhverfis mig,

ranglæti vara þeirra skal hylja sjálfa þá.

11Lát rigna á þá eldsglóðum,

hrind þeim í gryfjur, svo að þeir fái eigi upp staðið.

12Illmáll maður skal eigi fá staðist í landinu,

ofríkismanninn skal ógæfan elta með sífelldum höggum.

13Ég veit, að Drottinn flytur mál hrjáðra,

rekur réttar snauðra.

14Vissulega skulu hinir réttlátu lofa nafn þitt,

hinir hreinskilnu búa fyrir augliti þínu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help