Sálmarnir 12 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.

2Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu,

hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.

3Lygi tala þeir hver við annan,

með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir.

4Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum,

öllum tungum er tala drambsamleg orð,

5þeim er segja: “Með tungunni munum vér sigra,

varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?”

6“Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku

vil ég nú rísa upp,” segir Drottinn.

“Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana.”

7Orð Drottins eru hrein orð,

skírt silfur, sjöhreinsað gull.

8Þú, Drottinn, munt vernda oss,

varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur.

9Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi,

og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help