Jeremía 45 - Icelandic Bible 1981

Orðið til Barúks

1Orðið sem Jeremía spámaður talaði til Barúks Neríasonar, þá er hann skrifaði þessi orð í bókina eftir forsögn Jeremía á fjórða ríkisári Jójakíms Jósíasonar, konungs í Júda:

2Svo segir Drottinn, Ísraels Guð, um þig, Barúk:

3Þú sagðir: “Vei mér, því að Drottinn bætir harmi við kvöl mína. Ég er þreyttur orðinn af andvörpum mínum, og hvíld finn ég enga!”

4Svo skalt þú til hans mæla: Svo segir Drottinn:

Sjá, það sem ég hefi byggt, ríf ég niður, og það sem ég hefi gróðursett, uppræti ég.

5En þú ætlar þér mikinn hlut! Girnst það eigi! Því að sjá, ég leiði ógæfu yfir allt hold - segir Drottinn. En þér gef ég líf þitt að herfangi, hvert sem þú fer.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help