1Æ, hversu einmana er nú borgin,
sú er áður var svo fjölbyggð,
orðin eins og ekkja,
sú er voldug var meðal þjóðanna,
furstafrúin meðal héraðanna
orðin kvaðarkona.
2Hún grætur sáran um nætur,
og tárin streyma ofan vanga hennar.
Enginn er sá er huggi hana
af öllum ástmönnum hennar.
Allir vinir hennar hafa brugðist henni,
þeir eru orðnir óvinir hennar.
3Júda hefir flúið land fyrir eymd
og fyrir mikilli ánauð.
Hann býr meðal heiðingjanna,
finnur engan hvíldarstað.
Allir ofsækjendur hans náðu honum
í þrengslunum.
4Vegirnir til Síonar syrgja,
af því að engir koma til hátíðahalds.
Öll hlið hennar eru eydd,
prestar hennar andvarpa,
meyjar hennar eru sorgbitnar,
og sjálf er hún hrygg í hjarta.
5Fjendur hennar eru orðnir ofan á,
óvinir hennar lifa ánægðir.
Því að Drottinn hefir hrellt hana
vegna hennar mörgu synda,
börn hennar fóru burt herleidd
fyrir kúgaranum.
6Þannig fór burt frá Síonarborg
allt skraut hennar.
Höfðingjar hennar eru orðnir eins og hrútar,
sem ekkert haglendi finna,
og þeir fóru magnþrota burt
fyrir ofsóknaranum.
7Jerúsalem minnist
á eymdardögum sínum og mæðudögum
allra kjörgripa sinna,
er hún átti forðum daga.
Þegar lýður hennar féll í hendur kúgarans,
hjálpaði enginn henni.
Kúgararnir horfðu á það,
hlógu að hrakförum hennar.
8Jerúsalem hefir syndgað stórlega,
fyrir því varð hún að viðurstyggð.
Allir þeir er dáðu hana, fyrirlíta hana,
af því að þeir hafa séð blygðan hennar,
og hún andvarpar sjálf
og snýr sér undan.
9Saurugleiki hennar loðir við klæðafald hennar,
hún hugsaði ekki um endalokin.
Hún féll undradjúpt,
enginn verður til að hugga hana.
Lít, Drottinn, á eymd mína,
því að óvinirnir hrósa sigri.
10Kúgarinn rétti út hönd sína
eftir öllum dýrgripum hennar.
Já, hún sá, hversu heiðingjarnir
gengu inn í helgidóm hennar,
sem þú hefir um boðið: “Þeir skulu ekki koma í söfnuð þinn.”
11Allur lýður hennar andvarpar,
leitar sér viðurværis,
gefur dýrgripi sína fyrir matbjörg
til þess að draga fram lífið.
Sjá þú, Drottinn, og lít á,
hversu ég er fyrirlitin.
12Komið til mín allir þér, sem um veginn farið,
sjáið og skoðið,
hvort til sé önnur eins kvöl og mín,
sú er mér hefir verið gjörð,
mér, sem Drottinn hrelldi
á degi sinnar brennandi reiði.
13Af hæðum sendi hann eld
og lét hann fara niður í bein mín,
lagði net fyrir fætur mér,
rak mig aftur,
gjörði mig auða,
sífelldlega sjúka.
14Ok synda minna er þungt orðið
fyrir hendi hans.
Þær eru bundnar saman, lagðar mér á háls,
hann hefir lamað þrótt minn.
Drottinn hefir selt mig í hendur þeirra,
er ég fæ eigi staðist í móti.
15Drottinn hefir hafnað hetjum mínum,
öllum þeim, er í mér voru,
hann hefir boðað hátíð gegn mér
til þess að knosa æskumenn mína.
Drottinn hefir troðið vínlagarþró
meynni Júda-dóttur.
16Yfir þessu græt ég,
augu mín fljóta í tárum.
Því að huggarinn er langt í burtu frá mér,
sá er hressti sál mína.
Börn mín eru komin í örbirgð,
því að óvinirnir báru hærri hlut.
17Síon réttir út hendur sínar,
enginn verður til að hugga hana.
Drottinn bauð út á móti Jakob
fjendum hans allt í kring.
Jerúsalem er orðin
að viðurstyggð meðal þeirra.
18Drottinn er réttlátur,
því að ég þrjóskaðist gegn boði hans.
Ó, heyrið það, allir lýðir,
og sjáið kvöl mína.
Meyjar mínar og yngismenn
fóru burt herleidd.
19Ég kallaði á ástmenn mína,
þeir sviku mig.
Prestar mínir og öldungar
önduðust í borginni,
þá er þeir leituðu sér bjargar
til þess að draga fram lífið.
20Sjá, Drottinn, hve ég er hrædd,
hve iður mín ólga.
Hjartað berst í brjósti mér,
því að ég var svo þverúðarfull.
Sverðið svipti mig börnunum úti fyrir,
drepsóttin í húsum inni.
21Þeir heyrðu, hversu ég andvarpaði,
enginn varð til að hugga mig.
Allir óvinir mínir spurðu óhamingju mína,
glöddust, af því að þú hefir gjört þetta.
Þú lætur þann dag koma, er þú hefir boðað,
þá verða þeir jafningjar mínir.
22Lát alla illsku þeirra koma fyrir auglit þitt,
og gjör við þá,
eins og þú hefir gjört við mig
vegna allra synda minna.
Því að andvörp mín eru mörg,
og hjarta mitt er sjúkt.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.