Sálmarnir 8 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur.

2Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn.

3Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi

til varnar gegn óvinum þínum,

til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.

4Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna,

tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,

5hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans,

og mannsins barn, að þú vitjir þess?

6Þú lést hann verða litlu minni en Guð,

með sæmd og heiðri krýndir þú hann.

7Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum,

allt lagðir þú að fótum hans:

8sauðfénað allan og uxa,

og auk þess dýr merkurinnar,

9fugla loftsins og fiska hafsins,

allt það er fer hafsins vegu.

10Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help