Sálmarnir 27 - Icelandic Bible 1981

1Davíðssálmur.

Drottinn er ljós mitt og fulltingi,

hvern ætti ég að óttast?

Drottinn er vígi lífs míns,

hvern ætti ég að hræðast?

2Þegar illvirkjarnir nálgast mig

til þess að fella mig,

þá verða það andstæðingar mínir og óvinir,

sem hrasa og falla.

3Þegar her sest um mig,

óttast hjarta mitt eigi,

þegar ófriður hefst í gegn mér,

er ég samt öruggur.

4Eins hefi ég beðið Drottin,

það eitt þrái ég:

Að ég fái að dveljast í húsi Drottins

alla ævidaga mína

til þess að fá að skoða yndisleik Drottins,

sökkva mér niður í hugleiðingar í musteri hans.

5Því að hann geymir mig í skjóli

á óheilladeginum,

hann felur mig í fylgsnum tjalds síns,

lyftir mér upp á klett.

6Þess vegna hefst upp höfuð mitt

yfir óvini mína umhverfis mig,

að ég með fögnuði megi færa fórnir í tjaldi hans,

syngja og leika Drottni.

7Heyr, Drottinn, ég hrópa hátt,

sýn mér miskunn og svara mér!

8Mér er hugsað til þín, er sagðir: “Leitið auglitis míns!”

Ég vil leita auglitis þíns, Drottinn.

9Hyl eigi auglit þitt fyrir mér,

vísa þjóni þínum eigi frá í reiði.

Þú hefir verið fulltingi mitt,

hrind mér eigi burt

og yfirgef mig eigi, þú Guð hjálpræðis míns.

10Enda þótt faðir minn og móðir hafi yfirgefið mig,

tekur Drottinn mig að sér.

11Vísa mér veg þinn, Drottinn,

leið mig um slétta braut

sakir óvina minna.

12Ofursel mig eigi græðgi andstæðinga minna,

því að falsvitni rísa í gegn mér

og menn er spúa rógmælum.

13Ég treysti því að fá að sjá gæsku Drottins

á landi lifenda!

14Vona á Drottin, ver öruggur og hugrakkur,

já, vona á Drottin.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help