Sálmarnir 58 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Davíðs-miktam.

2Talið þér í sannleika það sem rétt er, þér guðir?

Dæmið þér mennina með sanngirni?

3Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu,

hendur yðar vega út ofbeldi.

4Hinir illu eru frá móðurlífi viknir af leið,

lygarar fara villir vegar frá móðurskauti.

5Eitur þeirra er eins og höggormseitur,

þeir eru eins og dauf naðra, sem lokar eyrunum

6til þess að heyra ekki raust særingamannsins

né hins slungna töframanns.

7Guð, brjót sundur tennurnar í munni þeirra,

mölva jaxlana úr ljónunum, Drottinn!

8Lát þá hverfa eins og vatn, sem rennur burt;

miði hann örvum sínum á þá, þá hníga þeir,

9eins og snigillinn, sem rennur í sundur og hverfur,

ótímaburður konunnar, er eigi sá sólina.

10Áður en pottar yðar kenna hitans af þyrnunum,

hvort sem þyrnarnir eru grænir eða glóandi,

feykir hann hinum illa burt.

11Þá mun hinn réttláti fagna, af því að hann hefir fengið að sjá hefndina,

hann mun lauga fætur sína í blóði hinna óguðlegu.

12Þá munu menn segja: Hinn réttláti hlýtur þó ávöxt;

það er þó til Guð, sem dæmir á jörðunni.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help