Sálmarnir 130 - Icelandic Bible 1981

1Helgigönguljóð.

Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn,

2Drottinn, heyr þú raust mína,

lát eyru þín hlusta á

grátbeiðni mína!

3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum,

Drottinn, hver fengi þá staðist?

4En hjá þér er fyrirgefning,

svo að menn óttist þig.

5Ég vona á Drottin, sál mín vonar,

og hans orðs bíð ég.

6Meir en vökumenn morgun,

vökumenn morgun,

þreyr sál mín Drottin.

7Ó Ísrael, bíð þú Drottins,

því að hjá Drottni er miskunn,

og hjá honum er gnægð lausnar.

8Hann mun leysa Ísrael

frá öllum misgjörðum hans.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help