1Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði:
2Skyldi vitur maður svara með vindkenndri visku
og fylla brjóst sitt austanstormi -
3sanna mál sitt með orðum, sem ekkert gagna,
og ræðum, sem engu fá áorkað?
4Auk þess rífur þú niður guðsóttann
og veikir lotninguna, sem Guði ber.
5Því að misgjörð þín leggur þér orð í munn
og þú velur þér lævísra tungu.
6Þinn eigin munnur sakfellir þig, ekki ég,
og varir þínar vitna í gegn þér.
7Fæddist þú fyrstur manna
og ert þú í heiminn borinn fyrr en hæðirnar?
8Hefir þú hlustað í ráði Guðs
og hrifsað til þín spekina?
9Hvað veist þú, er vér eigi vissum,
hvað skilur þú, er oss væri ókunnugt?
10Til eru og öldungar, gráhærðir menn, vor á meðal,
auðgari að ævidögum en faðir þinn.
11Er huggun Guðs þér lítils virði
og mildileg orðin sem þú heyrir?
12Hvers vegna hrífur gremjan þig
og hví ranghvolfast augu þín,
13er þú snýr reiði þinni gegn Guði
og lætur þér slík orð um munn fara?
14Hvað er maðurinn, að hann geti verið hreinn,
og sá verið réttlátur, sem af konu er fæddur?
15Sjá, sínum heilögu treystir Hann ekki,
og himinninn er ekki hreinn í augum hans,
16hvað þá hinn andstyggilegi og spillti,
maðurinn, sem drekkur ranglætið eins og vatn.
17Ég vil fræða þig, heyr þú mig,
og það sem ég hefi séð, frá því vil ég segja,
18því er vitringarnir kunngjörðu
- og duldu ekki - svo sem arfsögn frá feðrum sínum,
19en þeim einum var landið gefið,
og enginn útlendingur hafði enn farið um meðal þeirra.
20Alla ævi sína kvelst hinn óguðlegi
og öll þau ár, sem geymd eru ofbeldismanninum.
21Skelfingarhljóð óma í eyrum honum,
á friðartímum ræðst eyðandinn á hann.
22Hann trúir því ekki, að hann komist út úr myrkrinu,
og hann er kjörinn undir sverðið.
23Hann reikar um til þess að leita sér brauðs - hvar er það? -
hann veit að ógæfudagurinn bíður hans.
24Neyð og angist skelfa hann,
hún ber hann ofurliði eins og konungur, sem búinn er til atlögu,
25af því hann útrétti hönd sína gegn Guði
og reis þrjóskur í móti hinum Almáttka,
26rann í móti honum illvígur
undir þykkum bungum skjalda sinna.
27Hann þakti andlit sitt spiki
og safnaði fitu á lendar sér,
28settist að í eyddum borgum,
í húsum, er enginn átti í að búa
og ákveðið var, að verða skyldu að rústum.
29Hann verður ekki ríkur, og eigur hans haldast ekki við,
og kornöx hans svigna ekki til jarðar.
30Hann kemst eigi undan myrkrinu,
frjóanga hans mun loginn svíða,
og fyrir reiðiblæstri hans ferst hann.
31Hann skyldi ekki reiða sig á hégóma; hann villist,
því að hégómi verður umbun hans.
32Það rætist fyrir skapadægur hans,
og pálmagrein hans grænkar eigi.
33Hann hristir af sér súr berin eins og vínviðurinn
og varpar af sér blómunum eins og olíutréð.
34Því að sveit hinna óguðlegu er ófrjó,
og eldur eyðir tjöldum mútugjafanna.
35Þeir ganga þungaðir með mæðu og ala ógæfu,
og kviður þeirra undirbýr svik.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.