Sálmarnir 142 - Icelandic Bible 1981

1Maskíl eftir Davíð, er hann var í hellinum. Bæn.

2Ég hrópa hátt til Drottins,

hástöfum grátbæni ég Drottin.

3Ég úthelli kveini mínu fyrir honum,

tjái honum neyð mína.

4Þegar andi minn örmagnast í mér,

þekkir þú götu mína.

Á leið þeirri er ég geng

hafa þeir lagt snörur fyrir mig.

5Ég lít til hægri handar og skyggnist um,

en enginn kannast við mig.

Mér er varnað sérhvers hælis,

enginn spyr eftir mér.

6Ég hrópa til þín, Drottinn,

ég segi: Þú ert hæli mitt,

hlutdeild mín á landi lifenda.

7Veit athygli kveini mínu,

því að ég er mjög þjakaður,

bjarga mér frá ofsækjendum mínum,

því að þeir eru mér yfirsterkari.

8Leið mig út úr dýflissunni,

að ég megi lofa nafn þitt,

hinir réttlátu skipast í kringum mig,

þegar þú gjörir vel til mín.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help