Sálmarnir 94 - Icelandic Bible 1981

1Drottinn, Guð hefndarinnar,

Guð hefndarinnar, birst þú í geisladýrð!

2Rís þú upp, dómari jarðar,

endurgjald ofstopamönnunum það er þeir hafa aðhafst!

3Hversu lengi, Drottinn, eiga illir menn,

hversu lengi, Drottinn, eiga illir menn að fagna?

4Þeir ausa úr sér drambyrðum,

allir illvirkjarnir rembast.

5Þeir kremja lýð þinn, Drottinn,

þjá arfleifð þína,

6drepa ekkjur og aðkomandi

og myrða föðurlausa

7og segja: “Drottinn sér það ekki,

Jakobs Guð tekur eigi eftir því.”

8Takið eftir, þér hinir fíflsku meðal lýðsins,

og þér fáráðlingar, hvenær ætlið þér að verða hyggnir?

9Mun sá eigi heyra, sem eyrað hefir plantað,

mun sá eigi sjá, sem augað hefir til búið?

10Skyldi sá er agar þjóðirnar eigi hegna,

hann sem kennir mönnunum þekkingu?

11Drottinn þekkir hugsanir mannsins,

að þær eru einber hégómi.

12Sæll er sá maður, er þú agar, Drottinn,

og fræðir í lögmáli þínu,

13til þess að hlífa honum við mótlætisdögunum,

uns gröf er grafin fyrir óguðlega.

14Því að Drottinn hrindir eigi burt lýð sínum

og yfirgefur eigi arfleifð sína,

15heldur mun rétturinn hverfa aftur til hins réttláta,

og honum munu allir hjartahreinir fylgja.

16Hver rís upp mér til hjálpar gegn illvirkjunum,

hver gengur fram fyrir mig gegn illgjörðamönnunum?

17Ef Drottinn veitti mér eigi fulltingi,

þá mundi sál mín brátt hvíla í dauðaþögn.

18Þegar ég hugsaði: “Mér skriðnar fótur,”

þá studdi mig miskunn þín, Drottinn.

19Þegar miklar áhyggjur lögðust á hjarta mitt,

hressti huggun þín sálu mína.

20Mun dómstóll spillingarinnar vera í bandalagi við þig,

hann sem býr öðrum tjón undir yfirskini réttarins?

21Þeir ráðast á líf hins réttláta

og sakfella saklaust blóð.

22En Drottinn er mér háborg

og Guð minn klettur mér til hælis.

23Hann geldur þeim misgjörð þeirra

og afmáir þá í illsku þeirra,

Drottinn, Guð vor, afmáir þá.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help