Sálmarnir 26 - Icelandic Bible 1981

1Davíðssálmur.

Lát mig ná rétti mínum, Drottinn,

því að ég geng fram í grandvarleik

og þér treysti ég óbifanlega.

2Rannsaka mig, Drottinn, og reyn mig,

prófa hug minn og hjarta.

3Því að ég hefi elsku þína fyrir augum,

og ég geng í sannleika þínum.

4Ég tek mér eigi sæti hjá lygurum

og hefi eigi umgengni við fláráða menn.

5Ég hata söfnuð illvirkjanna,

sit eigi meðal óguðlegra.

6Ég þvæ hendur mínar í sakleysi

og geng í kringum altari þitt, Drottinn,

7til þess að láta lofsönginn hljóma

og segja frá öllum þínum dásemdarverkum.

8Drottinn, ég elska bústað húss þíns

og staðinn þar sem dýrð þín býr.

9Hríf eigi sál mína burt með syndurum

né líf mitt með morðingjum,

10þeim er hafa svívirðing í höndum sér

og hægri höndina fulla af mútugjöfum.

11En ég geng fram í grandvarleik,

frelsa mig og líkna mér.

12Fótur minn stendur á sléttri grund,

í söfnuðunum vil ég lofa Drottin.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help