Sálmarnir 67 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð.

2Guð sé oss náðugur og blessi oss,

hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela]

3svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni

og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.

4Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð,

þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

5Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar,

því að þú dæmir lýðina réttvíslega

og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela]

6Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð,

þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

7Jörðin hefir gefið ávöxt sinn,

Guð, vor Guð, blessar oss.

8Guð blessi oss,

svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help