1Bæn guðsmannsins Móse.
Drottinn, þú hefir verið oss athvarf
frá kyni til kyns.
2Áður en fjöllin fæddust
og jörðin og heimurinn urðu til,
frá eilífð til eilífðar ert þú, ó Guð.
3Þú lætur manninn hverfa aftur til duftsins
og segir: “Hverfið aftur, þér mannanna börn!”
4Því að þúsund ár eru í þínum augum
sem dagurinn í gær, þegar hann er liðinn,
já, eins og næturvaka.
5Þú hrífur þá burt, sem í svefni,
þá er að morgni voru sem gróandi gras.
6Að morgni blómgast það og grær,
að kveldi fölnar það og visnar.
7Vér hverfum fyrir reiði þinni,
skelfumst fyrir bræði þinni.
8Þú hefir sett misgjörðir vorar fyrir augu þér,
vorar huldu syndir fyrir ljós auglitis þíns.
9Allir dagar vorir hverfa fyrir reiði þinni,
ár vor líða sem andvarp.
10Ævidagar vorir eru sjötíu ár
og þegar best lætur áttatíu ár,
og dýrsta hnossið er mæða og hégómi,
því að þeir líða í skyndi og vér fljúgum burt.
11Hver þekkir styrkleik reiði þinnar
og bræði þína, svo sem hana ber að óttast?
12Kenn oss að telja daga vora,
að vér megum öðlast viturt hjarta.
13Snú þú aftur, Drottinn. Hversu lengi er þess að bíða,
að þú aumkist yfir þjóna þína?
14Metta oss að morgni með miskunn þinni,
að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora.
15Veit oss gleði í stað daga þeirra, er þú hefir lægt oss,
ára þeirra, er vér höfum illt reynt.
16Lát dáðir þínar birtast þjónum þínum
og dýrð þína börnum þeirra.
17Hylli Drottins, Guðs vors, sé yfir oss,
styrk þú verk handa vorra.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.