Sálmarnir 44 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Kóraítamaskíl.

2Guð, með eyrum vorum höfum vér heyrt,

feður vorir hafa sagt oss

frá dáð þeirri, er þú drýgðir á dögum þeirra,

frá því, er þú gjörðir forðum daga.

3Þú stökktir burt þjóðum,

en gróðursettir þá,

þú lékst lýði harðlega,

en útbreiddir þá.

4Eigi unnu þeir landið með sverðum sínum,

og eigi hjálpaði armleggur þeirra þeim,

heldur hægri hönd þín og armleggur þinn

og ljós auglitis þíns,

því að þú hafðir þóknun á þeim.

5Þú einn ert konungur minn, ó Guð,

bjóð út hjálp Jakobsætt til handa.

6Fyrir þína hjálp rekum vér fjandmenn vora undir,

og fyrir þitt nafn troðum vér mótstöðumenn vora fótum.

7Ég treysti eigi boga mínum,

og sverð mitt veitir mér eigi sigur,

8heldur veitir þú oss sigur yfir fjandmönnum vorum

og lætur hatursmenn vora verða til skammar.

9Af Guði hrósum vér oss ætíð

og lofum nafn þitt að eilífu. [Sela]

10Og þó hefir þú útskúfað oss og látið oss verða til skammar

og fer eigi út með hersveitum vorum.

11Þú lætur oss hörfa undan fjandmönnum,

og hatursmenn vorir taka herfang.

12Þú selur oss fram sem fénað til slátrunar

og tvístrar oss meðal þjóðanna.

13Þú selur lýð þinn fyrir gjafverð,

tekur ekkert verð fyrir hann.

14Þú lætur oss verða til háðungar nágrönnum vorum,

til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss.

15Þú gjörir oss að orðskvið meðal lýðanna,

lætur þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss.

16Stöðuglega stendur smán mín mér fyrir sjónum,

og skömm hylur auglit mitt,

17af því ég verð að heyra spott og lastmæli

og horfa á óvininn og hinn hefnigjarna.

18Allt þetta hefir mætt oss,

og þó höfum vér eigi gleymt þér

og eigi rofið sáttmála þinn.

19Hjarta vort hefir eigi horfið frá þér

né skref vor beygt út af vegi þínum,

20en samt hefir þú kramið oss sundur á stað sjakalanna

og hulið oss niðdimmu.

21Ef vér hefðum gleymt nafni Guðs vors

og fórnað höndum til útlendra guða,

22mundi Guð eigi verða þess áskynja,

hann sem þekkir leyndarmál hjartans?

23En þín vegna erum vér stöðugt drepnir,

erum metnir sem sláturfé.

24Vakna! Hví sefur þú, Drottinn?

Vakna, útskúfa oss eigi um aldur!

25Hví hylur þú auglit þitt,

gleymir eymd vorri og kúgun?

26Sál vor er beygð í duftið,

líkami vor loðir við jörðina.

27Rís upp, veit oss lið

og frelsa oss sakir miskunnar þinnar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help