Sálmarnir 29 - Icelandic Bible 1981

1Davíðssálmur.

Tjáið Drottni vegsemd, þér guðasynir,

tjáið Drottni vegsemd og vald.

2Tjáið Drottni dýrð þá er nafni hans hæfir,

fallið fram fyrir Drottni í helgum skrúða.

3Raust Drottins hljómar yfir vötnunum,

Guð dýrðarinnar lætur þrumur drynja,

Drottinn ríkir yfir hinum miklu vötnum.

4Raust Drottins hljómar með krafti,

raust Drottins hljómar með tign.

5Raust Drottins brýtur sundur sedrustré,

Drottinn brýtur sundur sedrustrén á Líbanon.

6Hann lætur Líbanonfjöll hoppa eins og kálfa

og Hermonfjall eins og ungan vísund.

7Raust Drottins klýfur eldsloga.

8Raust Drottins lætur eyðimörkina skjálfa,

Drottinn lætur Kadeseyðimörk skjálfa.

9Raust Drottins lætur hindirnar bera fyrir tímann

og gjörir skógana nakta,

og allt í helgidómi hans segir: Dýrð!

10Drottinn situr í hásæti uppi yfir flóðinu,

Drottinn mun ríkja sem konungur að eilífu.

11Drottinn veitir lýð sínum styrkleik,

Drottinn blessar lýð sinn með friði.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help