1Þá svaraði Drottinn Job úr stormviðrinu og sagði:
2Hver er sá, sem myrkvar ráðsályktun Guðs
með óskynsamlegum orðum?
3Gyrð lendar þínar eins og maður,
þá mun ég spyrja þig, og þú skalt fræða mig.
4Hvar varst þú, þegar ég grundvallaði jörðina?
Seg fram, ef þú hefir þekkingu til.
5Hver ákvað mál hennar - þú veist það! -
eða hver þandi mælivaðinn yfir hana?
6Á hvað var stólpum hennar hleypt niður,
eða hver lagði hornstein hennar,
7þá er morgunstjörnurnar sungu gleðisöng allar saman
og allir guðssynir fögnuðu?
8Og hver byrgði hafið inni með hurðum,
þá er það braust fram, gekk út af móðurkviði,
9þá er ég fékk því skýin að klæðnaði
og svartaþykknið að reifum?
10þá er ég braut því takmörk
og setti slagbranda fyrir og hurðir
11og mælti: “Hingað skaltu komast og ekki lengra,
hér skulu þínar hreyknu hrannir brotna!”
12Hefir þú nokkurn tíma á ævi þinni boðið út morgninum,
vísað morgunroðanum á stað hans,
13til þess að hann gripi í jaðar jarðarinnar
og hinir óguðlegu yrðu hristir af henni?
14Hún breytist eins og leir undir signeti,
og allt kemur fram eins og á klæði.
15Og hinir óguðlegu verða sviptir ljósinu
og hinn upplyfti armleggur sundur brotinn.
16Hefir þú komið að uppsprettum hafsins
og gengið á botni undirdjúpsins?
17Hafa hlið dauðans opnast fyrir þér
og hefir þú séð hlið svartamyrkursins?
18Hefir þú litið yfir breidd jarðarinnar?
Seg fram, fyrst þú veist það allt saman.
19Hvar er vegurinn þangað sem ljósið býr,
og myrkrið - hvar á það heima,
20svo að þú gætir flutt það heim í landareign þess
og þekktir göturnar heim að húsi þess?
21Þú veist það, því að þá fæddist þú,
og tala daga þinna er há!
22Hefir þú komið til forðabúrs snjávarins
og séð forðabúr haglsins,
23sem ég hefi geymt til tíma neyðarinnar,
til orustu- og ófriðardagsins?
24Hvar er vegurinn þangað sem ljósið skiptist
og austanvindurinn dreifist yfir jörðina?
25Hver hefir búið til rennu fyrir steypiregnið
og veg fyrir eldingarnar
26til þess að láta rigna yfir mannautt land,
yfir eyðimörkina, þar sem enginn býr,
27til þess að metta auðnir og eyðilönd
og láta grængresi spretta?
28Á regnið föður
eða hver hefir getið daggardropana?
29Af kviði hverrar er ísinn útgenginn,
og hrím himinsins - hver fæddi það?
30Vötnin þéttast eins og steinn,
og yfirborð fljótsins verður samfrosta.
31Getur þú þrengt sjöstirnis-böndin
eða fær þú leyst fjötra Óríons?
32Lætur þú stjörnumerki dýrahringsins koma fram á sínum tíma
og leiðir þú Birnuna með húnum hennar?
33Þekkir þú lög himinsins
eða ákveður þú yfirráð hans yfir jörðunni?
34Getur þú lyft raust þinni upp til skýsins,
svo að vatnaflaumurinn hylji þig?
35Getur þú sent eldingarnar, svo að þær fari
og segi við þig: “Hér erum vér!”
36Hver hefir lagt vísdóm í hin dimmu ský
eða hver hefir gefið loftsjónunum vit?
37Hver telur skýin með visku,
og vatnsbelgir himinsins - hver hellir úr þeim,
38þegar moldin rennur saman í kökk
og hnausarnir loða hver við annan?
39Veiðir þú bráðina fyrir ljónynjuna,
og seður þú græðgi ungljónanna,
40þá er þau kúra í bæli sínu
og vaka yfir veiði í þéttum runni?
41Hver býr hrafninum fæðu hans,
þá er ungar hans hrópa til Guðs,
flögra til og frá ætislausir?
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.