Sálmarnir 138 - Icelandic Bible 1981

1Eftir Davíð.

Ég vil lofa þig af öllu hjarta,

lofsyngja þér frammi fyrir guðunum.

2Ég vil falla fram fyrir þínu heilaga musteri

og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti,

því að þú hefir gjört nafn þitt og orð þitt meira öllu öðru.

3Þegar ég hrópaði, bænheyrðir þú mig,

þú veittir mér hugmóð, er ég fann kraft hjá mér.

4Allir konungar á jörðu skulu lofa þig, Drottinn,

er þeir heyra orðin af munni þínum.

5Þeir skulu syngja um vegu Drottins,

því að mikil er dýrð Drottins.

6Því að Drottinn er hár og sér þó hina lítilmótlegu

og þekkir hinn drambláta í fjarska.

7Þótt ég sé staddur í þrengingu,

lætur þú mig lífi halda,

þú réttir út hönd þína gegn reiði óvina minna,

og hægri hönd þín hjálpar mér.

8Drottinn mun koma öllu vel til vegar fyrir mig,

Drottinn, miskunn þín varir að eilífu.

Yfirgef eigi verk handa þinna.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help