1Son minn, gleym eigi kenning minni,
og hjarta þitt varðveiti boðorð mín,
2því að langa lífdaga og farsæl ár
og velgengni munu þau veita þér í ríkum mæli.
3Kærleiki og trúfesti munu aldrei yfirgefa þig.
Bind þau um háls þér,
rita þau á spjald hjarta þíns,
4þá munt þú ávinna þér hylli og fögur hyggindi,
bæði í augum Guðs og manna.
5Treystu Drottni af öllu hjarta,
en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit.
6Mundu til hans á öllum þínum vegum,
þá mun hann gjöra stigu þína slétta.
7Þú skalt ekki þykjast vitur,
óttast Drottin og forðast illt,
8það mun verða heilnæmt fyrir líkama þinn
og hressandi fyrir bein þín.
9Tigna Drottin með eigum þínum
og með frumgróða allrar uppskeru þinnar,
10þá munu hlöður þínar verða nægtafullar
og vínberjalögurinn flóa út af vínlagarþróm þínum.
11Son minn, lítilsvirð eigi ögun Drottins
og lát þér eigi gremjast umvöndun hans,
12því að Drottinn agar þann, sem hann elskar,
og lætur þann son kenna til, sem hann hefir mætur á.
Sá er óhultur, sem varðveitir spekina13Sæll er sá maður, sem öðlast hefir speki,
sá maður, sem hyggindi hlotnast.
14Því að betra er að afla sér hennar en að afla silfurs,
og arðurinn af henni ágætari en gull.
15Hún er dýrmætari en perlur,
og allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana.
16Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar,
auður og mannvirðingar í vinstri hendi hennar.
17Vegir hennar eru yndislegir vegir
og allar götur hennar velgengni.
18Hún er lífstré þeim, sem grípa hana,
og sæll er hver sá, er heldur fast í hana.
19Drottinn grundvallaði jörðina með visku,
festi himininn af hyggjuviti.
Fyrir þekking hans mynduðust hafdjúpin
og drýpur döggin úr skýjunum.
21Son minn, varðveit þú visku og gætni,
lát þær eigi víkja frá augum þínum,
22þá munu þær verða líf sálu þinni
og prýði fyrir háls þinn.
23Þá muntu ganga óhultur veg þinn
og eigi drepa við fæti.
24Þegar þú leggst til hvíldar, þarft þú ekki að hræðast,
og hvílist þú, mun svefninn verða vær.
25Þú þarft ekki að óttast skyndilega hræðslu,
né eyðilegging hinna óguðlegu, þegar hún dynur yfir.
26Því að Drottinn mun vera athvarf þitt
og varðveita fót þinn, að hann verði eigi fanginn.
Elskaðu náunga þinn27Synja eigi góðs þeim, er þarfnast þess,
ef það er á þínu valdi að gjöra það.
28Seg þú ekki við náunga þinn: “Far og kom aftur!
á morgun skal ég gefa þér” - ef þú þó átt það til.
29Brugga eigi illt gegn náunga þínum,
þegar hann býr öruggur hjá þér.
30Deil ekki við neinn að ástæðulausu,
ef hann hefir ekki gjört þér neitt mein.
31Öfunda ekki ofbeldismanninn
og haf engar mætur á neinum gjörðum hans.
32Því að andstyggð er sá Drottni, er afvega fer,
en ráðvandir menn alúðarvinir hans.
33Bölvun Drottins er yfir húsi hins óguðlega,
en bústað réttlátra blessar hann.
34Spottsama spottar hann,
en lítillátum veitir hann náð.
35Vitrir menn munu heiður hljóta,
en heimskingjar bera smán úr býtum.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.