Sálmarnir 23 - Icelandic Bible 1981

1Davíðssálmur.

Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.

2Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,

leiðir mig að vötnum,

þar sem ég má næðis njóta.

3Hann hressir sál mína,

leiðir mig um rétta vegu

fyrir sakir nafns síns.

4Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,

óttast ég ekkert illt,

því að þú ert hjá mér,

sproti þinn og stafur hugga mig.

5Þú býr mér borð

frammi fyrir fjendum mínum,

þú smyr höfuð mitt með olíu,

bikar minn er barmafullur.

6Já, gæfa og náð fylgja mér

alla ævidaga mína,

og í húsi Drottins bý ég

langa ævi.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help