Orðskviðirnir 5 - Icelandic Bible 1981

Varastu lausláta konu

1Son minn, gef gaum að speki minni,

hneig eyra þitt að hyggindum mínum,

2til þess að þú megir varðveita mannvit

og varir þínar geymi þekkingu.

3Því að hunangsseimur drýpur af vörum lauslátrar konu,

og gómur hennar er hálli en olía.

4En að síðustu er hún beiskari en malurt,

beitt eins og tvíeggjað sverð.

5Fætur hennar ganga niður til dauðans,

spor hennar liggja til Heljar.

6Til þess að hún hitti ekki leið lífsins,

eru brautir hennar á reiki, og hún veit ekki hvert hún fer.

7Heyrið mig því, synir,

og víkið eigi frá orðum munns míns.

8Legg leið þína langt frá henni

og kom þú ekki nálægt húsdyrum hennar,

9svo að þú gefir ekki öðrum æskublóma þinn

og ár þín grimmum manni,

10svo að útlendir menn mettist ekki af eigum þínum

og aflafé þitt lendi ekki í annarlegu húsi,

11og þú andvarpir að lokum,

þá er líkami þinn og hold veslast upp,

12og segir: “Hversu hefi ég hatað aga

og hjarta mitt fyrirlitið umvöndun!

13að ég skyldi ekki hlýða raustu kennara minna

og hneigja eyra mitt til þeirra, er fræddu mig!

14Við sjálft lá, að ég hefði ratað í mestu ógæfu

á miðju dómþingi safnaðarins.”

15Drekk þú vatn úr vatnsþró þinni

og rennandi vatn úr brunni þínum.

16Eiga lindir þínar að flóa út á götuna,

lækir þínir út á torgin?

17Þér einum skulu þær tilheyra

og engum óviðkomandi með þér.

18Uppspretta þín sé blessuð,

og gleð þig yfir festarmey æsku þinnar,

19elsku-hindinni, yndis-gemsunni.

Brjóst hennar gjöri þig ætíð drukkinn,

og ást hennar fjötri þig ævinlega.

20En hví skyldir þú, son minn, láta léttúðarkonu töfra þig,

og faðma barm lauslátrar konu?

21Því að vegir sérhvers manns blasa við Drottni,

og allar brautir hans gjörir hann sléttar.

22Misgjörðir hins óguðlega fanga hann,

og hann verður veiddur í snörur synda sinna.

23Hann mun deyja vegna skorts á aga

og kollsteypast vegna sinnar miklu heimsku.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help