1Þá svaraði Job og sagði:
2Já, vissulega, miklir menn eruð þér,
og með yður mun spekin deyja út!
3En ég hefi vit eins og þér,
ekki stend ég yður að baki,
og hver er sá, er eigi viti slíkt!
4Athlægi vinar síns - það má ég vera,
ég sem kallaði til Guðs, og hann svaraði mér,
- ég, hinn réttláti, hreinlyndi, er að athlægi!
5“Ógæfan er fyrirlitleg” - segir hinn öruggi,
“hún hæfir þeim, sem skrikar fótur.”
6Tjöld spellvirkjanna standa ósködduð,
og þeir lifa áhyggjulausir, sem egna Guð til reiði,
og sá sem þykist bera Guð í hendi sér.
7En spyr þú skepnurnar, og þær munu kenna þér,
fugla loftsins, og þeir munu fræða þig,
8eða villidýrin, og þau munu kenna þér,
og fiskar hafsins munu kunngjöra þér.
9Hver þeirra veit ekki
að hönd Drottins hefir gjört þetta?
10Í hans hendi er líf alls hins lifanda
og andi sérhvers mannslíkama.
11Prófar eyrað ekki orðin,
eins og gómurinn smakkar matinn?
12Hjá öldruðum mönnum er speki,
og langir lífdagar veita hyggindi.
13Hjá Guði er speki og máttur,
hans eru ráð og hyggindi.
14Þegar hann rífur niður, þá verður eigi byggt upp aftur,
þegar hann setur einhvern í fangelsi, þá verður ekki lokið upp.
15Þegar hann stíflar vötnin, þá þorna þau upp,
þegar hann hleypir þeim, þá umturna þau jörðinni.
16Hjá honum er máttur og viska,
á valdi hans er sá er villist, og sá er í villu leiðir.
17Hann leiðir ráðherra burt nakta
og gjörir dómara að fíflum.
18Hann leysir fjötra konunganna
og bindur reipi um lendar sjálfra þeirra.
19Hann leiðir presta burt nakta
og steypir þeim, sem sitja fastir í sessi.
20Hann rænir reynda menn málinu
og sviptir öldungana dómgreind.
21Hann hellir fyrirlitning yfir tignarmennin
og gjörir slakt belti hinna sterku.
22Hann grefur hið hulda fram úr myrkrinu
og dregur niðdimmuna fram í birtuna.
23Hann veitir þjóðunum vöxt og eyðir þeim,
útbreiðir þjóðirnar og leiðir þær burt.
24Hann firrir þjóðhöfðingja landsins viti
og lætur þá villast um veglaus öræfi.
25Þeir fálma í ljóslausu myrkri,
og hann lætur þá skjögra eins og drukkinn mann.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.