Sálmarnir 127 - Icelandic Bible 1981

1Helgigönguljóð. Eftir Salómon.

Ef Drottinn byggir ekki húsið,

erfiða smiðirnir til ónýtis.

Ef Drottinn verndar eigi borgina,

vakir vörðurinn til ónýtis.

2Það er til ónýtis fyrir yður,

þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar

og etið brauð, sem aflað er með striti:

Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!

3Sjá, synir eru gjöf frá Drottni,

ávöxtur móðurkviðarins er umbun.

4Eins og örvar í hendi kappans,

svo eru synir getnir í æsku.

5Sæll er sá maður, er fyllt hefir örvamæli sinn með þeim,

þeir verða eigi til skammar,

er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help