1Sálmur.
Syngið Drottni nýjan söng,
því að hann hefir gjört dásemdarverk,
hægri hönd hans hjálpaði honum
og hans heilagi armleggur.
2Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt,
fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.
3Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob
og trúfesti sinnar við Ísraels ætt.
Öll endimörk jarðar sáu
hjálpræði Guðs vors.
4Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd,
hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið.
5Leikið fyrir Drottni á gígju,
á gígju með lofsöngshljómi,
6með lúðrum og básúnuhljómi,
látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottni.
7Hafið drynji og allt sem í því er,
heimurinn og þeir sem í honum lifa.
8Fljótin skulu klappa lof í lófa,
fjöllin fagna öll saman
9fyrir Drottni sem kemur
til að dæma jörðina.
Hann dæmir heiminn með réttlæti
og þjóðirnar með réttvísi.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.