Amos 5 - Icelandic Bible 1981

Angurljóð um Ísrael

1Heyrið þetta orð, sem ég mæli yfir yður sem harmkvæði, þér Ísraelsmenn!

2Fallin er mærin Ísrael,

rís aldrei aftur,

flöt liggur hún á sínu eigin landi,

enginn reisir hana.

3Svo segir Drottinn Guð: Sú borg, sem sendir frá sér þúsund manns, mun hafa eftir hundrað, og sú sem sendir frá sér hundrað, mun hafa eftir tíu í Ísraelsríki.

Leitið Guðs, hatið hið illa

4Svo segir Drottinn við Ísraels hús: Leitið mín, til þess að þér megið lífi halda.

5En leitið ekki til Betel! Og til Gilgal skuluð þér ekki fara og yfir til Beerseba skuluð þér ekki halda. Því að Gilgal skal fara í útlegð og Betel verða að auðn.

6Leitið Drottins, til þess að þér megið lífi halda. Ella mun hann ráðast á Jósefs hús eins og eldur og eyða, án þess að nokkur sé í Betel, sem slökkvi.

8Hann, sem skóp sjöstjörnuna og Óríon, sem gjörir niðmyrkrið að björtum morgni og dag að dimmri nótt, sem kallaði á vötn sjávarins og jós þeim yfir jörðina, Drottinn er nafn hans.

9Hann lætur eyðing leiftra yfir hina sterku, og eyðing kemur yfir vígi.

7Þeir sem umhverfa réttinum í malurt og varpa réttlætinu til jarðar,

10þeir hata þann, sem ver réttinn í borgarhliðinu, og hafa viðbjóð á þeim, sem talar satt.

11Sökum þess að þér fótum troðið hina snauðu og takið af þeim gjafir í korni, þá skuluð þér að vísu byggja hús úr höggnu grjóti, en eigi búa í þeim, skuluð planta yndislega víngarða, en ekki drekka vínið, sem úr þeim kemur.

12Því að ég veit, að misgjörðir yðar eru margar og syndir yðar miklar. Þér þröngvið hinum saklausa, þiggið mútur og hallið rétti hinna fátæku í borgarhliðinu.

13Fyrir því þegir hygginn maður á slíkri tíð, því að það er vond tíð.

14Leitið hins góða, en ekki hins illa, til þess að þér megið lífi halda, og þá mun Drottinn, Guð allsherjar vera með yður, eins og þér hafið sagt.

15Hatið hið illa og elskið hið góða, eflið réttinn í borgarhliðinu. Má vera að Drottinn, Guð allsherjar miskunni sig þá yfir leifar Jósefs.

Angurljóð

16Fyrir því segir Drottinn, Guð allsherjar, Drottinn: Á öllum torgum skal vera harmakvein, og á öllum strætum skal sagt verða: “Vei, vei!” Og akurmennirnir skulu kalla þá er kveina kunna, til sorgarathafnar og harmakveins,

17og í öllum víngörðum skal vera harmakvein, þá er ég fer um land þitt, - segir Drottinn.

Dómsdagur

18Vei þeim, sem óska þess, að dagur Drottins komi. Hvað skal yður dagur Drottins? Hann er dimmur, en ekki bjartur -

19eins og ef maður flýði undan ljóni, en yrði á vegi fyrir bjarndýri, kæmist þó heim og styddi hendi sinni við húsvegginn, en þá biti höggormur hann.

20Já, dimmur er dagur Drottins, en ekki bjartur, myrkur og án nokkurrar ljósglætu.

Gegn innantómum guðsþjónustum

21Ég hata, ég fyrirlít hátíðir yðar og hefi enga unun af hátíðasamkomum yðar.

22Þótt þér færið mér brennifórnir, þá hefi ég enga velþóknun á fórnargjöfum yðar, ég lít ekki við heillafórnum af alikálfum yðar.

23Burt frá mér með glamur ljóða þinna, ég vil ekki heyra hljóm harpna þinna.

24Lát heldur réttinn vella fram sem vatn og réttlætið sem sírennandi læk.

25Færðuð þér mér, Ísraels hús, sláturfórnir og matfórnir í fjörutíu ár á eyðimörkinni?

26En þér skuluð fá að bera Sikkút, konung yðar, og stjörnu Guðs yðar, Kevan, guðalíkneski yðar, er þér hafið gjört yður,

27og ég vil herleiða yður austur fyrir Damaskus, - segir Drottinn. Guð allsherjar er nafn hans.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help