Sálmarnir 132 - Icelandic Bible 1981

1Helgigönguljóð.

Drottinn, mun þú Davíð

allar þrautir hans,

2hann sem sór Drottni,

gjörði heit hinum volduga Jakobs Guði:

3“Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt,

eigi stíga í hvílurúm mitt,

4eigi unna augum mínum svefns

né augnalokum mínum blunds,

5fyrr en ég hefi fundið stað fyrir Drottin,

bústað fyrir hinn volduga Jakobs Guð.”

6Sjá, vér höfum heyrt um hann í Efrata,

fundið hann á Jaarmörk.

7Látum oss ganga til bústaðar Guðs,

falla fram á fótskör hans.

8Tak þig upp, Drottinn, og far á hvíldarstað þinn,

þú og örk máttar þíns.

9Prestar þínir íklæðist réttlæti

og dýrkendur þínir fagni.

10Sakir Davíðs þjóns þíns

vísa þú þínum smurða eigi frá.

11Drottinn hefir svarið Davíð

óbrigðulan eið, er hann eigi mun rjúfa:

“Af ávexti kviðar þíns

mun ég setja mann í hásæti þitt.

12Ef synir þínir varðveita sáttmála minn

og reglur mínar, þær er ég kenni þeim,

þá skulu og þeirra synir um aldur

sitja í hásæti þínu.”

13Því að Drottinn hefir útvalið Síon,

þráð hana sér til bústaðar:

14“Þetta er hvíldarstaður minn um aldur,

hér vil ég búa, því að hann hefi ég þráð.

15Vistir hans vil ég vissulega blessa,

og fátæklinga hans vil ég seðja með brauði,

16presta hans vil ég íklæða hjálpræði,

hinir guðhræddu er þar búa skulu kveða fagnaðarópi.

17Þar vil ég láta Davíð horn vaxa,

þar hefi ég búið lampa mínum smurða.

18Óvini hans vil ég íklæða skömm,

en á honum skal kóróna hans ljóma.”

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help