1Helgigönguljóð.
Ég ákalla Drottin í nauðum mínum,
og hann bænheyrir mig.
2Drottinn, frelsa sál mína frá ljúgandi vörum,
frá tælandi tungu.
3Hversu mun fara fyrir þér nú og síðar,
þú tælandi tunga?
4Örvar harðstjórans eru hvesstar
með glóandi viðarkolum.
5Vei mér, að ég dvel hjá Mesek,
bý hjá tjöldum Kedars.
6Nógu lengi hefir sál mín búið
hjá þeim er friðinn hata.
7Þótt ég tali friðlega,
vilja þeir ófrið.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.