Sálmarnir 46 - Icelandic Bible 1981

1Til söngstjórans. Eftir Kóraíta. Fyrir kvenraddir. Ljóð.

2Guð er oss hæli og styrkur,

örugg hjálp í nauðum.

3Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist

og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.

4Látum vötnin gnýja og freyða,

látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins. [Sela]

5Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg,

heilagan bústað Hins hæsta.

6Guð býr í henni, eigi mun hún bifast,

Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.

7Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu,

raust hans þrumaði, jörðin nötraði.

8Drottinn hersveitanna er með oss,

Jakobs Guð vort vígi. [Sela]

9Komið, skoðið dáðir Drottins,

hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.

10Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar,

brýtur bogann, slær af oddinn,

brennir skjöldu í eldi.

11“Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð,

hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.”

12Drottinn hersveitanna er með oss,

Jakobs Guð vort vígi. [Sela]

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help