Jósúabók 12 - Icelandic Bible 1981

Skrá um sigraða konunga

1Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og allt sléttlendið austanmegin:

2Síhon, Amorítakonungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta,

3og sléttlendinu að Genesaretvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet Jesímót, og til suðurs að Pisgahlíðum.

4Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí

5og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landamærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon.

6Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar.

7Þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír, - en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiptingu þeirra -,

8í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, - land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta:

9Konungurinn í Jeríkó einn,

konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn,

10konungurinn í Jerúsalem einn,

konungurinn í Hebron einn,

11konungurinn í Jarmút einn,

konungurinn í Lakís einn,

12konungurinn í Eglon einn,

konungurinn í Geser einn,

13konungurinn í Debír einn,

konungurinn í Geder einn,

14konungurinn í Horma einn,

konungurinn í Arad einn,

15konungurinn í Líbna einn,

konungurinn í Adúllam einn,

16konungurinn í Makeda einn,

konungurinn í Betel einn,

17konungurinn í Tappúa einn,

konungurinn í Hefer einn,

18konungurinn í Afek einn,

konungurinn í Saron einn,

19konungurinn í Madón einn,

konungurinn í Hasór einn,

20konungurinn í Simrón Meróm einn,

konungurinn í Aksaf einn,

21konungurinn í Taanak einn,

konungurinn í Megíddó einn,

22konungurinn í Kedes einn,

konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn,

23konungurinn í Dór í Dórshæðum einn,

konungur heiðingjanna í Gilgal einn,

24konungurinn í Tirsa einn,

- alls þrjátíu og einn konungur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help