Jobsbók 26 - Icelandic Bible 1981

Job hæðir Bildad og lofar Guð

1Þá svaraði Job og sagði:

2En hvað þú hefir hjálpað hinum þróttlausa,

stutt hinn máttvana armlegg!

3En hvað þú hefir ráðið hinum óvitra

og kunngjört mikla speki!

4Fyrir hverjum hefir þú flutt ræðu þína,

og hvers andi var það, sem gekk fram úr þér?

5Andar hinna framliðnu í undirdjúpunum skelfast

ásamt vötnunum og íbúum þeirra.

6Naktir liggja undirheimar fyrir Guði

og undirdjúpin skýlulaus.

7Hann þenur norðrið út yfir auðninni

og lætur jörðina svífa í tómum geimnum,

8hann bindur vatnið saman í skýjum sínum,

og þó brestur skýflókinn ekki undir því,

9hann byrgir fyrir ásjónu hásætis síns

með því að breiða ský sitt yfir hana.

10Marklínu hefir hann dregið hringinn í kring á haffletinum,

þar sem mætast ljós og myrkur.

11Stoðir himinsins nötra

og hræðast ógnun hans.

12Með mætti sínum æsir hann hafið,

og með hyggindum sínum sundurmolar hann hafdrekann.

13Fyrir andgusti hans verður himinninn heiður,

hönd hans leggur í gegn hinn flughraða dreka.

14Sjá, þetta eru aðeins ystu takmörk vega hans,

og hversu lágt hvísl er það, sem vér heyrum!

En þrumu máttarverka hans - hver skilur hana?

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help