1Um þær mundir tók Hiskía sótt og var að dauða kominn. Þá kom Jesaja Amozson spámaður til hans og sagði við hann: “Svo segir Drottinn: Ráðstafa húsi þínu, því að þú munt deyja og eigi lifa.”
2Þá sneri Hiskía andliti sínu til veggjar, bað til Drottins
3og mælti: “Æ, Drottinn, minnstu þess, að ég hefi gengið fyrir augliti þínu með trúmennsku og einlægu hjarta og gjört það, sem þér er þóknanlegt!” Og hann grét sáran.
4Þá kom orð Drottins, til Jesaja, svolátandi:
5“Far og seg Hiskía: Svo segir Drottinn, Guð Davíðs, forföður þíns: Ég hefi heyrt bæn þína og séð tár þín. Sjá, ég vil enn leggja fimmtán ár við aldur þinn.
6Og ég vil frelsa þig og þessa borg af hendi Assýríukonungs, og ég mun vernda þessa borg.
7Og þetta skalt þú til marks hafa af Drottni, að Drottinn muni efna það, sem hann hefir heitið:
8Sjá, ég færi aftur stigskuggann, er með sólinni hefir færst niður á sólskífu Akasar, um tíu stig.” Og sólin færðist aftur á bak þau tíu stig á sólskífunni, er hún hafði gengið niður.
Þakkarsálmur Hiskía9Sálmur eftir Hiskía konung í Júda, þá er hann hafði verið sjúkur, en var heill orðinn af sjúkleik sínum.
10Ég sagði: Á hádegi ævi minnar
stend ég við dauðans dyr.
Það sem eftir er ára minna
er ég ofurseldur hliðum Heljar.
11Ég sagði: Ég fæ eigi framar að sjá Drottin
á landi lifenda,
ég fæ eigi framar menn að líta
meðal þeirra sem heiminn byggja.
12Bústað mínum er kippt upp og svipt burt frá mér
eins og hjarðmannatjaldi.
Ég hefi undið upp líf mitt eins og vefari.
Hann sker mig frá uppistöðunni.
Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
13Ég þreyði til morguns.
Öll mín bein voru kramin eins og af ljónshrammi.
Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
14Ég tísti sem svala
og kurra sem dúfa.
Augu mín mæna til himins.
Drottinn, ég er í nauðum, líkna þú mér.
15Hvað á ég að segja? Hann talaði til mín
og efndi sín orð.
Í auðmýkt vil ég ganga alla mína lífdaga,
því minni sálarangist er létt.
16Drottinn, af þessu lifa menn,
og í öllu þessu er líf anda míns fólgið,
þú gafst mér heilsuna aftur og lést mig lifna við.
17Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl.
Þú forðaðir lífi mínu
frá gröf eyðingarinnar,
því að þú varpaðir að baki þér
öllum syndum mínum.
18Hel vegsamar þig eigi,
dauðinn lofar þig eigi.
Þeir sem niður eru stignir í gröfina
vona eigi á trúfesti þína.
19En sá einn lofar þig, sem lifir,
eins og ég í dag.
Feður kunngjöra börnum sínum
trúfesti þína.
20Drottinn er mitt hjálpræði.
Í húsi Drottins
skulum vér því hreyfa strengina
alla vora lífdaga.
21Og Jesaja bauð að taka skyldi fíkjudeig og leggja á kýlið, og mundi honum þá batna.
22En Hiskía sagði: “Hvað skal ég hafa til marks um það, að ég megi aftur ganga upp í hús Drottins?”
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.