1Helgigönguljóð.
Þegar Drottinn sneri við hag Síonar,
þá var sem oss dreymdi.
2Þá fylltist munnur vor hlátri,
og tungur vorar fögnuði.
Þá sögðu menn meðal þjóðanna:
“Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá.”
3Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss,
vér vorum glaðir.
4Snú við hag vorum, Drottinn,
eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.
5Þeir sem sá með tárum,
munu uppskera með gleðisöng.
6Grátandi fara menn
og bera sæðið til sáningar,
með gleðisöng koma þeir aftur
og bera kornbindin heim.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.