Orðskviðirnir 2 - Icelandic Bible 1981

Spekinni sungið lof

1Son minn, ef þú veitir orðum mínum viðtöku

og geymir boðorð mín hjá þér,

2svo að þú ljáir spekinni athygli þína,

hneigir hjarta þitt að hyggindum,

3já, ef þú kallar á skynsemina

og hrópar á hyggindin,

4ef þú leitar að þeim sem að silfri

og grefst eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,

5þá munt þú skilja, hvað ótti Drottins er,

og öðlast þekking á Guði.

6Því að Drottinn veitir speki,

af munni hans kemur þekking og hyggindi.

7Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna,

er skjöldur þeirra, sem breyta grandvarlega,

8með því að hann vakir yfir stigum réttarins

og varðveitir veg sinna guðhræddu.

9Þá munt þú og skilja, hvað réttlæti er og réttur

og ráðvendni, - í stuttu máli, sérhverja braut hins góða.

10Því að speki mun koma í hjarta þitt,

og þekking verða sálu þinni yndisleg.

11Aðgætni mun vernda þig,

og hyggindin varðveita þig,

12til þess að frelsa þig frá vegi hins illa,

frá þeim mönnum, sem fara með fals,

13sem yfirgefa stigu einlægninnar

og ganga á vegum myrkursins

14sem hafa gleði af því að gjöra illt,

fagna yfir illsku hrekkjum,

15sem gjöra vegu sína hlykkjótta

og komnir eru út á glapstigu í breytni sinni,

16til þess að frelsa þig frá léttúðarkonu,

frá blíðmálugri konu sem annar á,

17sem yfirgefið hefir unnusta æsku sinnar

og gleymt sáttmála Guðs síns,

18því að hús hennar hnígur í dauðann,

og brautir hennar liggja niður til framliðinna,

19þeir sem inn til hennar fara, snúa engir aftur,

og aldrei komast þeir á lífsins stigu, -

20til þess að þú gangir á vegi góðra manna

og haldir þig á stigum réttlátra.

21Því að hinir hreinskilnu munu byggja landið,

og hinir grandvöru verða eftir í því.

22En hinir óguðlegu munu upprættir verða úr landinu,

og hinum svikulu verða útrýmt þaðan.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help